|
14.09.2006 18:08:19 / politica
Öll skráning í vísó fer núna framm á heimasíðu
nemendafélagsins!
http://politica.hi.is
»
20.03.2006 20:29:48 / politica
Næstkomandi
föstudag verður farið í vísindaferð í
Landsvirkjun.
Þessar ferðir hafa alltaf verið
mjög skemmtilegar og um að gera að sletta aðeins úr klaufunum
í tilefni af hækkandi sól og vorkomu!!! (Svo koma próf og þá er
ekkert að gerast).... Þannig að endilega að
FJÖLMENNA og mæta
Tímasetning og
staður:
Það fer rúta frá stúdentakjallaranum
kl: 16.00 Mæting er í Landsvirkjun, Háaleitisbraut 68
(hliðiná Pizza 67) kl:16.30
Svo verður rúta niður í miðbæ eftir
ferðina 
Koma svo!!!!!
»
13.03.2006 19:37:45 / politica
Þá er komið að vísindaferð í
Samfylkinguna.
Hún verður næsta föstudag 17. mars og það er
mæting á Hallveigarstíg 1 kl. 17:00 stundvíslega. Samfylkingin
bauðst til að lóðsa okkur í gegnum Alþingi og þeir sem hafa áhuga á
að taka léttan hring þar geta mætt niður á Alþingi kl. 16:00 og
endilega takið fram í skráningu ef þið ætlið að mæta
þangað.
Það eru um 40 sem komast í ferðina og endilega
látið vita í tíma ef þið komist ekki með svo fleiri komist
með.
»
10.03.2006 13:58:24 / politica
Vísindaferð í Vífilfell er aflýst
vegna dræmrar þátttöku!!!!
»
08.03.2006 14:07:53 / politica
Sæl og blessuð rollurnar
mínar
Þá er komið að vísindaferð í Vífilfell,
núna á föstudag.
Það komast 30 með í ferðina og það er
mæting upp í Vífilfell kl. 17:00
stundvíslega.
Vífilfell hefur verið frægt fyrir að
veita vel á áfengissviðinu þannig að enginn fer edrú
heim.
»
27.02.2006 14:43:54 / politica
Næstkomandi föstudag verður farið í vísó í
sjálfstæðisflokkinn. Þetta er ein skemmtilegasta
vísindaferð vetrarins og ætti enginn að láta hana framhjá sér
fara!
Það er mæting í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, kl 17.00
stundvíslega.
Eftir skemmtunina hjá Sjálfstæðismönnum verður
svo farið með rútu á Ölver þar sem stór bjór verður seldur á
450 kall og þið getið látið ljós ykkar skína í
karokee keppni Politicu 2006!!!
Þannig að það er eins gott að fara að þjálfa
raddböndin og undirbúa sig undir skemmtilega
vísindaferð
Það komast 50 manns með að þessu sinni og
skráningu lýkur í hádeginu á fimmtudag!
»
15.02.2006 17:36:10 / politica
JÆJA ÞÁ ER KOMIÐ AÐ ÞESSU!!!
Þessi orðsending er til þeirra sem hafa keypt
miða á árshátíðina:
Rútan austur leggur af stað frá ODDA kl:17.00
stundvíslega núna á föstudaginn. Þannig að þið skulið mæta
tímanlega til að missa ekki af henni.
Svo sjáumst við bara með hressleikann í
fyrirrúmi í Draugasetrinu þar sem
tjúttið byrjar!!!
Fyrir þá sem vilja vera á bíl þá áætlum við að
vera uppúr kl 18.00 í Draugasetrinu og svo á Hótel Selfossi mun
borðhald hefjast kl 20.00
Það verða svo rútur aftur í bæinn um
01.30
Sjáumst
»
10.02.2006 17:34:56 / politica
Sala á árshátíðarmiðum mun
halda áfram næstkomandi mánudag og þriðjudag en þá er líka
síðasti sjens að kaupa miða.
Við verðum í
ODDA mánudaginn 13.feb.
kl 12:15-13:30 og þriðjudaginn 14. feb í ODDA frá kl
12:15-14:00
Þeir sem eru búnir að skrá sig hérna á síðunni verða líka að kaupa
miða þá því það er ekki nóg að skrá sig bara 
Við erum ekki með
posa en það er hraðbanki í Odda þannig að þetta er ekkert
mál 
»
01.02.2006 08:14:36 / politica
Föstudaginn 10. febrúar hefur utanríkisráðuneytið boðið okkur í
morgunkaffi til sín. Allir sem sjá sér fært að mæta ættu að gera
það. Þar hefur verið kölluð til manneskja af hverju sviði til að
kynna fyrir okkur starfsemi ráðuneytisins. Við sem
stjórnmálafræðinemar látum þetta tækifæri að sjálfsögðu ekki okkur
úr greipum renna.
Mæting í ráðuneytið, Rauðarárstíg 25, klukkan 10, stendur yfir til
sirka 12. Öllum er frjálst að vera með fyrirspurnir.
Það eru eflaust margir sem hafa hugsað sér að starfa við
utanríkisþjónustu í framtíðinni, því vil ég hvetja alla til að koma
og læra um starfsemi hennar.
Kv, POLITICA
»
31.01.2006 20:26:50 / politica
Næsta föstudag verður farið í vísindaferð í Mastercard.
Það munum við mæta ásamt fullt af öðru fólki m.a frá Akureyri og HR
og skemmta okkur ærlega.
Það komast aðeins 25 manns með í ferðina þannig að verið snögg
að skrá ykkur ef þið viljið mæta!
Það er mæting stundvíslega kl. 17.30 í aðalstöðvar Mastercard
Ármúla 28-30
Svo verður að sjálfsögðu eitthvað húllumhæ á eftir með hinu
fólkinu og kemur það í ljós á staðnum hvað það verður.
(MUNIÐ SVO AÐ SKRÁ YKKUR Í GISTINGUNA Á ÁRSHÁTÍÐINNI HÉRNA FYRIR
NEÐAN! ÞAÐ ER TAKMARKAÐUR FJÖLDI HERBERGJA OG ÞAÐ VERÐUR
LAAAAANGSKEMMTILEGAST EF SEM FLESTIR GISTA! )
»
30.01.2006 23:43:16 / politica
Hæ hæ
Nú
fer árshátíðin okkar að skella á! Hún er haldin á Hótel Selfossi 17
febrúar.
Við fengum svaka gott tilboð á gistingu og hvetjum alla til að
taka þetta tilboð.
Tilboðið hljóðar svo:
3
rétta máltíð
Gisting á herbergi fyrir tvo
Morgunmatur
Þetta kostar allt saman 6950 kr. á mann fyrir þá sem eru í
Politicu.
Þeir sem eru staðráðnir í að taka þetta tilboð eru
vinsamlegast beðnir um að skrá sig hérna með kommenti. Helst með
þeim sem þeir ætla að gista með. Listinn er samt ekki
bindandi.
Rosa gott tilboð sem allir ættu að skella sér á!
Ef
þið viljið tékka á hótelinu eru upplýsingar á www.hotelselfoss.is
»
25.01.2006 14:56:41 / politica
-
Anna Vala Hrafnsdóttir
-
Arnar Stefánsson
-
Þórir Baldvin Hrafnsson
-
Sævar Örn Albertsson
-
Ólafur Viggó Thordersen
-
Arnar Þór Sigurjónsson
-
Katrín Pálsdóttir
-
Daði Rúnar Pétursson
-
Ólafur Benediktsson
-
Helena Gunnarsdóttir
-
Lovísa Arnardóttir
-
Maren Ásta Sæmundsdóttir
-
Jan Hermann Erlingsson
-
Kristján Freyr Kristjánsson
-
Reynir Jóhannesson
-
Jón Skjöldur Níelsson
-
Jóna Dögg Þórðardóttir
-
Valgeir Helgi Bergþórsson
-
Íris Huld Christersdóttir
-
Tinna Björg Sigðurðardóttir
-
Endre Lunde
-
Kristín Halla Kristinsdóttir
-
Hilmar Kristinsson
-
Steingrímur Jón Guðjónsson
-
Kristín María Birgisdóttir
»
24.01.2006 15:53:50 / politica
Jæja!! Þeir sem voru búnir að skrá sig sendiráðið MUNIÐ AÐ TAKA
MEÐ YKKUR SKILRÍKI.
Eeeeen...eftir vísindaferðina í Bandaríska sendiráðið verður
fjölmennt á Glaumbar þar sem verður hægt að fá bjór á spottprís og
fyrir þá sem vilja borða verða matseðlar á borðum og kósýheit.
Við verðum á Glaumbar uppúr kl 18.00 þannig að þeir sem ekki
komust með í vísóið endilega komið á Glaumbar og etið og drekkið
með vísindaförunum!!
Sjáumst á föstudaginn 
»
18.01.2006 10:24:18 / politica
Jæja þá er komið að fyrstu vísindaferðinni á þessu
ári!
Hún verður í Bandaríska sendiráðið. Ferðin er 27. janúar og
hefst kl. 15:30 að þessu sinni og stendur til 17:30. Léttar
veitingar verða í boði.
Það komast bara 25 manns með í ferðina og við þurfum að fá
fullt nafn því sendiráðið vill fá nafnalistann sendan fyrir fram.
Því lýkur skráningu á þriðjudaginn 24 janúar.
Þið komið ykkur sjálf niður í sendiráð (Laufásvegi
21).
Þar sem ferðin endar snemma ætlum við að hafa
eitthvað húllumhæ eftir hana. Hvað það verður kemur bara í ljós
þegar þar að kemur.
»
19.12.2005 12:03:28 / politica
Jæja þá er komið að jólatjútti Politicu.
Það verður haldið miðvikudaginn 21. des. á Pravda og byrjar kl.
20:00.
Það verður frír bjór í boði og svo verða verðlaun fyrir besta
búninginn.
Endilega allir að mæta í jólastuði og svo er hægt að kíkja á
ofurjólaballið eftir Politicu djammið.
»
Síður: 1 2
|